Spennusagan The Three Just Men eftir breska rithöfundinn Edgar Wallace kom fyrst út árið 1924 og er fimmta sagan í bókaröðinni um mennina fjóra. Söguhetjurnar, hinir umræddu menn, eru fjórir ríkir herramenn sem taka upp á því að gerast sjálfskipaðir löggæslumenn og refsa afbrotamönnum sem armur laganna hefur ekki náð til.